|
Síðasti skráningardagur á vorsýningu og sýningarþjálfun kl. 20:00 |
|
föstudagur, 29 janúar 2010 |
|
Við minnum á að síðasti skráningardagur á vorsýningu HRFÍ er í dag. Hægt er að skrá sig á heimasíðu HRFÍ í gegnum öruggan vefþjón eða á skrifstofu félagsins. Við viljum hvetja alla Dobermann eigendur til þess að skrá hundana sína og hafa gaman af. Dobermann tegundin átti góðu gengi að fagna sýningarárið 2009 og verður gaman að fylgjast með gang mála árið 2010. Í kvöld kl. 20:00 verður einnig sýningarþjálfun í reiðhöll Gusts og eru allir velkomnir sem fyrr. Við minnum á sýningartaum, dót, nammi, kúkapoka og góða skapið. Vonumst til að sjá sem flesta Með kveðju Vefstjóri |
|
|
miðvikudagur, 27 janúar 2010 |
|
|
|
Aðalfundur Dobermann Ísland |
|
miðvikudagur, 27 janúar 2010 |
|
Aðalfundur Dobermann Ísland verður haldin miðvikudagskvöldið 24. febrúar kl. 20:00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og farið verður yfir það sem er framundan árið 2010. Við viljum einnig vekja athygli á að í ár á að kjósa um sæti varaformanns, gjaldkera og meðsjtórnenda skv. 7. gr. laga félagsins og hvetjum við alla sem hafa áhuga á að sitja í stjórn Dobermann Ísland til þess að gefa kost á sér fyrir miðvikudaginn 10. febrúar. Framboð í stjórn og tillögur að lagabreytingum skulu berast skriflega fyrir þann tíma. Við viljum hvetja alla félagsmenn til þess til þess að mæta á fundinn og kynna sér það sem er framundan á starfsárinu 2010 og minnum á félagsgjaldið sem er kr. 2.500- fyrir einstaklinga en kr. 3.500- fyrir pör. Félagsgjaldið greiðist inn á reikning félagsins 526-26-2910 kt: 690405-0910 Með kveðju Stjórn Dobermann Ísland |
|
|
mánudagur, 25 janúar 2010 |
|
|
|
laugardagur, 23 janúar 2010 |
|
Á morgun sunnudag ætlum við að ganga aftur Esjuna. Við hittumst við bílastæðið við Esjurætur kl. 11:30 og svo ganga allir á sínum hraða eins langt upp og þeir treysta sér til.
Við mælum með að fólk sé í góðum skóm og fatnaði við hæfi. Og einnig er gott að vera með göngustafi ef fólk lumar á þeim ásamt því að vera með léttan bakpoka með vatnsbrúsa í og jafnvel smá súkkulaði eða epli. Hundarnir ættu helst að vera í beisli og hafa göngu og dráttarbeislin frá Björkis reynst mjög vel. Fyrir áhugasama er hægt að nálgast þau hjá hundaleikskólanum Voffaborg á góðu verði.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 10 - 18 af 209 |