Forsíða
Afmælisbörn dagsins
þriðjudagur, 03 febrúar 2009

 Afmælisbörn dagsins eru 7 að þessu sinni en hvolparnir frá Ægishjálmsræktun

eru 2 ára gamlir í dag. 

 

Við óskum Gutta í eigu Bjarna, Púka í eigu Hörpu og Ottó, Össu í eigu Ómars og Margrétar, Þrá í eigu Margrétar Gísla og Kalla í eigu Jóns innilega til hamingju með daginn.  Þór er í Serbíu og Þula sem er í eigu Devil Garden ræktunnarinnar einnig og vonandi  hafa þau öll átt góðan dag.

 

 

 

 

 

 
Afmælisbarn dagsins
föstudagur, 30 janúar 2009

 Afmælisbörn dagsins eru tvö að þessu sinni.  Plútó í eigu Karls Helga og Skvísa í eigu Þóru Kristínar.  Þau eru 3 ára í dag og algjörir fjörkálfar.

 

Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn og eflaust eiga þau von á dekri frá eigendum sínum í dag.

 

 

 
Æfing á morgun
fimmtudagur, 29 janúar 2009

 Við minnum á æfinguna á morgun föstudagskvöld kl. 20:00 í reiðhöll Gusts í Kópavogi.  Síðustu æfingar hafa verið alveg frábærlega sóttar og er virkilega gaman að sjá alla þessar ólíku hundategundir æfa saman í sátt og samlyndi við frábærar aðstæður í góðum félagsskap hvers annars.

 

Það kostar kr. 500- sem fyrr fyrir félagsmenn en kr. 700- fyrir aðra og eru allir velkomnir.  Við minnum fólk á að taka með nammi, dót, kúkapoka og góða skapið.   Hundaþjálfari verður á staðnum til að veita ráðleggingar.

 

Hlökkum til að sjá sem flesta á góðri æfingu annað kvöld.

 

Með kveðju

Vefstjóri

 

 

 

 

 

 
Síðasti skráningardagur
fimmtudagur, 29 janúar 2009

 Við minnum á að síðasti skráningardagur á vorsýningu HRFÍ er á morgun föstudaginn 30. janúar.  Sýningin er helgina 28. febrúar - 1. mars og verðu hún haldin í reiðhöll Fáks í Víðdal.

 

Sýningar HRFÍ er glæsilegur viðburður í hundamenningu okkar Íslendinga og viljum við hvetja sem flesta til þess að skrá sig.   Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu HRFÍ.

 

 
Æfing í kvöld
föstudagur, 23 janúar 2009

 Við minnum á æfinguna í kvöld kl. 20:00 í reiðhöll Gusts í Kópavogi.  Það kostar kr. 500- fyrir félagsmenn en kr. 700- fyrir aðra.  Hundaþjálfari verður á staðnum og verður gleðin að sjálfsögðu í fyrirrúmi.  Allir velkomnir og muna eftir góða skapinu, dóti, nammi og kúkapoka.

 

En annars fer að styttast í næstu sýningu HRFÍ og viljum við hvetja sem flesta til að skrá hundana sína á hana enda sýningarnar alltaf glæsilegur og skemmtilegur viðburður í íslenskri hundamenningu.

 

Það er búið að setja inn í dagatalið dagsetningarnar fyrir sýningar ársins ásamt síðasta skráningardag á sýningarnar.  Það fer svo að styttast í að við birtum vinnuprófa dagskrá ársins hjá klúbbnum og getum við lofað því að hún verður ekki af verri endanum.

 

Með kveðju og von um að sjá sem flesta á æfingunni í kvöld.

Vefstjóri

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 82 - 90 af 209