|
Þá er aðalfundur Dobermann Ísland afstaðinn og tókst hann afar vel. Fundurinn var ágætlega sóttur og var dagskráin framundan kynnt og lofar hún afar góðu.
En það var kosið í nýja stjórn og voru framboð í öll sæti og meira til og þykir okkur það afar skemmtilegt því það ber vott um að félagsskapurinn sé mjög virkur og félagsmenn tilbúnir til að leggja sitt af mörkum til að starfið sé lifandi og skemmtilegt.
En nýja stjórn skipa:
Gróa Sturludóttir Formaður
Karen Gísladóttir Varaformaður
Margrét Rúnarsdóttir Gjaldkeri
Anna D. Hermannsdóttir Ritari
Karl Helgi Jónsson Meðsjtórnandi
En það var líka gerð lagabreyting sem fól í sér að það voru kosnir tveir varamenn til árs í senn og það eru:
Ylfa Ólafsdóttir og Valgerður Guðsteinsdóttir.
Við óskum nýrri stjórn til hamingju með kjörið og þökkum fráfarandi stjórn fyrir frábært ár. Fundargerðin er svo væntanleg inn á vefinn á næstu dögum.
En við viljum einnig minna á æfinguna á föstudagskvöldið kl. 20:00 í reiðhöll Gusts í Kópavogi. Við hvetjum alla til þess að mæta og taka góða æfingu sem vel er hægt að nýta sem upphitun fyrir sýningu HRFÍ sem fram fer um helgina. Munið eftir nammi, dóti, kúkapoka og góða skapinu.
Sjáumst hress
Vefstjóri
|