Forsíða
Mynd dagsins
sunnudagur, 12 apríl 2009
 
Æfing í kvöld og bronspróf
föstudagur, 10 apríl 2009

 Við viljum benda á að það er æfing í kvöld á vegum Dobermann Ísland í reiðhöll Gusts kl. 20:00.  Allir velkomnir og kostar kr. 500- fyrir félagsmenn en kr. 700- fyrir aðra.  Munið eftir dóti, nammi, taum, kúkapoka og að sjálfsögðu góða skapinu. 

 

Það er kjörið að koma og taka góða æfingu með ferfætlingana við kjöraðstæður í góðum félagsskap svona mitt í páskafríinu.  Það verða teknar léttar hlýðni æfingar og þeir sem vilja geta rennt í gengum æfingarnar sem eru til bronsprófs enda fer að styttast í næsta próf.

 

Síðasti skráningardagur í bronsprófið sem HRFÍ heldur þann 23. apríl næstkomandi er fimmtudagurinn 16 apríl en dómari er Albert Steingrímsson og viljum við hvetja sem flesta til þess að skrá sig.  Því er ekki úr vegi að kíkja á æfingu og bursta aðeins rykið af hlýðninni en reglurnar verða aðgengilegar á staðnum og aðstoð sé þess óskað.

 

Með kveðju og von um að sjá sem flesta í kvöld

Vefstjóri

 

 
Æfing í kvöld
föstudagur, 03 apríl 2009

 Við viljum minna alla á æfinguna í kvöld kl. 20:00 í reiðhöll Gusts í Kópavogi.  Það kostar kr. 500- fyrir félagsmenn en kr. 700- fyrir aðra og eru allir velkomnir. 

 

Munið eftir taum, dóti, nammi, kúkapoka og góðaskapinu.  Það er hægt að fá leiðsögn og góð ráð á staðnum sé þess óskað.

 

En við viljum annars hvetja alla til þess að fylgjast vel með á síðunni á næstunni þar sem ýmislegt áhugavert er í farvatninu og hlökkum við til að sjá ykkur sem flest með í starfinu.

 

Með kveðju

Vefstjóri

 
Frábær helgi
þriðjudagur, 24 mars 2009

 Þá er frábærri helgi í Garðheimum lokið.  Helgin var afar vel sótt og er alveg greinilegt að það er mikill áhugi á meðal Íslendinga á stórum hundum og eiga Garðheimar hrós skilið fyrir þetta framtak sem er heldur betur búið að festa sig í sessi í íslenskri hundamenningu.

 

Dobermann tegundin var að sjálfsögðu með bás og var hann skreyttur með hinum ýmsu myndum af Dobermann hundum og ýmsum hlutum sem snúa að tegundinni og þjálfun á henni.  Tegundin vakti töluverða athygli enda ekki skrítið þar sem að hundarnir sýndu allar sínar bestu hliðar og sjörmuðu jafnt unga sem aldna alveg upp úr skónum.

 

Við  viljum þakka öllum sem lögðu hönd á plóg við að setja upp básinn og sérstakar þakkir fá þau Arkan, Max, Lína, X, Púki, Jagó og Assa sem stóðu vaktina ásamt eigendum sínum og fyrir að vera tegundinni til sóma alla helgina undir miklu áreiti.

 

Með kveðju

Vefstjóri

 

 
Stórhundadagar um helgina
fimmtudagur, 19 mars 2009

 Næstkomandi helgi 21.-22. mars verða Stórhundadagar í Garðheimum.  Kynntir verða millistórir og stórir hundar frá HRFÍ.  Á staðnum verður dýralæknir til skrafs og ráðagerða, hundasnyrtir, tilboð á hundafóðri og ýmsum hundavörum, lukkupottur o.fl.  

 

Sýningin stendur frá 12-17 báða daga og að sjálfsögðu verður Dobermann tegundinni gerð góð skil.  Stórhundadagar eru skemmtilegur viðburður í hundamenningunni hér heima og frábært tækifæri  fyrir áhugafólk um þessa ferfættu vini okkar til þess að kynna sér hinar ýmsu tegundir og það sem snýr að þeim.

 

Við hvetjum alla áhugasama til þess að gera sér ferð í Garðheima um helgina og kíkja á alla þá glæsilegu hunda sem þar verða á vappi ásamt eigendum sínum.

 

Með kveðju

Vefstjóri.

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 64 - 72 af 209