|
Þá er fyrsta úrtökumóti sumarsins lokið. Veðrið var okkur hagstætt og voru aðstæður til mótshalds mjög góðar og mótsstaður afbragð.
Það var 9 hundar skráðir til leiks í hlýðni brons og þar af 1 í krakkaflokki og 5 hundar skráðir í hlýðni 1. Það var mæting í nafnakall kl. 13:00, það var byrjað á bronsinu og lauk dagskrá rétt eftir 17:00.
Í krakkaflokki var það hann Ólafur Árni með dvergschnauzer hundinn Caruso sem gerði sér lítið fyrir og skoraði hvorki meira né minna en 154 stig. Það var virkilega gaman að fylgjast með þeim félögum renna í gegnum æfingarnar og er óhætt að segja að þeir eru ansi efnilegir enda ætla þeir að mæta galvaskir í næsta próf og verður gaman að fylgjast með þeim félögunum í framtíðinni.
Í hlýðni brons var það Gróa Sturludóttir með labrador hundinn Breka sem sigraði með 150 stig, það var mjög gaman að fylgjast með þeim vinna saman og Breki á örugglega eftir að gera enn betur þegar líður á sumarið enda flott par þarna á ferð. Í öðru sæti varð Bjarni Antonsson með dobermann hundinn Gutta með 146 stig en þeir eiga helling inni og verður mjög spennandi að sjá framvinduna hjá þeim félögum í sumar hvort sem verður í hlýðni brons eða 1. Í þriðja sæti varð svo Ottó Þrastarson með dobermann hundinn Púka með 127 stig. Þetta var í fyrsta skipti sem Ottó tók þátt i prófi og var mjög gaman að fylgjast með þeim enda gott sambandið á milli þeirra og erum við sannfærð um að þeir eiga eftir að gera enn betur í næsta prófi.
Önnur úrslit urðu þau að Sigurður Már með rottweiler hundinn Neró lenti í fjórða sæti með 120,5 stig og með þeim árangri náði hann ásamt þeim 3 fyrstu að vinna sér inn þátttökurétt á Íslandsmeistaramótinu í september. Aðrir þátttakendur voru að sýna flotta takta og vantar bara herslumuninn upp á að þeir nái gildri einkunn í öllum æfingum og öðlist þannig þátttökurétt í september. Það er þó ekkert til að hafa áhyggjur af enda 2 úrtökumót eftir og því ekkert annað að gera en að halda áfram að æfa af krafti og mæta tvíelfd næst.
Hlýðni 1 tók svo við af bronsinu og þar var það Karen með dobermann tíkina Lísu sem varð í fyrsta sæti með 190 stig. Í öðru sæti varð Gróa með dobermann tíkina Körmu með 153 stig og verður spennandi að fylgjast með þeim Lísu og Körmu á Íslandsmeistaramótinu í september enda öðluðust þær báðar þátttökurétt með þessum frábæra árangri. Í þriðja sæti varð Sigurður Már með rottweiler hundinn Neró með 106 stig. Sigurður og Neró eiga helling inni enda flottir saman og hafa þeir þegar náð inn á Íslandsmeistaramót með góðum árangri í bronsinu en það verður gaman að sjá hvort að þeir nái líka inn í hlýðni 1 á næsta móti. Hinir hundarnir eins og í bronsinu vantar herslumuninn upp á að ná inn á gilda einkunn og vonandi eiga eigendurnir bara eftir að halda áfram að æfa grimmt og mæta sterk til leiks í júlí eða ágúst.
Dobermann Ísland vill þakka öllum þátttakendum fyrir frábæran dag í Hafnarfirðinum og gott próf. Sérstakar þakkir fá umboðsaðilar Propac á Íslandi fyrir að styrkja mótaröðina með glæsilegum vinningum og velvild í garð klúbbsins. Einnig fær Héðinn hf. bestu þakkir fyrir afnot af planinu, Monika Karlsdóttir fyrir dómgæslu, Unnar Már fyrir prófstjórn og Ylfa fyrir að taka að sér stöðu ritara.
Myndir frá prófinu munu svo koma inn í myndasafnið fyrir helgina og hérna til hliðar á síðunni verður svo hægt að nálgast allar upplýsingar um úrslit og framvindu Íslandsmeistaramótsins og viljum við hvetja alla til þess að fylgjast vel með og taka þátt í frábærri mótaröð.
Með kveðju
Stjórn Dobermann Ísland
|