Forsíða
Sýningarþjálfun í kvöld
föstudagur, 02 október 2009

 Það verður sýningarþjálfun í reiðhöll Gusts í kvöld kl. 19:00.  Það kostar kr. 500- að vera með og eru allir velkomnir.  Það er um að gera að nýta tækifærið og æfa í síðasta sinn fyrir sýninguna sem er núna um helgina.

 

Við verðum líka með peysur og boli til sölu á staðnum til styrktar Dobermann klúbbnum og kostar peysan kr. 4500- en bolurinn kr. 2000- , hægt er að kaupa peysu og bol saman og kostar það þá kr. 6000-

 

En annars er Dobermann tegundin í hring kl. 09:00 á sunnudagsmorgun og eru 10 hundar skráðir að þessu sinni sem verður að teljast nokkuð gott í þessari tegund.  Við viljum hvetja sem flesta til að mæta og hvetja sýnendur og hunda áfram.

 

Með kveðju og von um að sjá sem flesta í kvöld.

Vefstjóri

 

 
Vinnuhundadagur og Íslandsmeistaramót í hlýðni á laugardaginn
fimmtudagur, 24 september 2009

 

Laugardaginn 26. september verður haldinn vinnuhundadagur á Íslandi með yfirskriftina 

"Besti vinur mannsins til gagns og gamans" í reiðhöll Gusts í Kópavogi.

 

Það er Propac á Íslandi sem stendur fyrir þessum viðburði ásamt því að Íslandsmeistaramót

í hlýðni hunda verður haldið í fyrsta sinn og er það einmitt Propac sem er aðal styrktaraðili

mótsins.  Það hafa verið haldin þrjú úrtökumót í hlýðni í sumar og núna er komið að því að

hundarnir sem öðluðust þátttökurétt í þeim keppi um titilinn "Íslandsmeistari í hlýðni

árið 2009".

 

Íslandsmeistaramótið byrjar kl. 10:00 en dagskráin í reiðhöllinni kl. 12:00 og stendur

hún til kl. 16:00.  Þar munu flestir þeir aðilar sem koma eitthvað að vinnu og þjálfun hunda

sem nýtist bæði til gagns og gamans kynna starfsemi sína:


Björgunarhundasveit Íslands

Leitarhundar

Leiðsöguhundar fyrir blinda

Lögregluhundur verður á svæðinu

Hundar í ferðaþjónustu

Hlýðnir hundar sýna listir sínar

Sporavinna kynnt

Hundafimi kynnt og fólk getur fengið að prufa tækin

Mjóhundaeigendur kynna beituhlaup

Fuglahundar kynna fuglavinnu

Husky hundar bjóða upp á kerrudrátt fyrir börn

Dýralæknir verður á svæðinu og veitir ráðgjöf um tannhirðu hunda

Hundaskólar og þjálfara kynna þau námskeið sem þeir hafa upp á að bjóða

Höfundur bókarinnar "Gerðu besta vininn betri" mun veita góð ráð

 

Heitt verður á könnunni og allir með gleðina í fararbroddi og bros á vör.  Hægt verður

að kaupa ýmsar vörur tengdar hundum á svæðinu á góðu verði og ætti allt áhugafólk 

um hunda, stóra sem smáa, að finna eitthvað við sitt hæfi.

 

Við vonumst til að sjá sem flesta, bæði fólk og ferfætlinga, með okkur á laugardaginn.

 

 
Loksins
miðvikudagur, 23 september 2009

 Loksins, loksins er síðan komin aftur í loftið.  Það var einn af okkar frábæru      félagsmönnum hann Heimir Hansen sem á heiðurinn af því að

síðunni var bjargað og kunnum við honum margfaldar þakkir fyrir.

 

En það er margt og mikið búið að gerast í tegundinni núna síðustu vikurnar og því er búið að uppfæra heilbrigðisniðurstöður, sýningarárangur og skapgerðarmatsniðurstöður.

 

Því mun vefstjóri vera duglegur að henda inn fréttum á næstunni og vonandi hafa allir gaman af að fylgjast með.

 

Með kv.

Vefstjór

 
Hvolpar
miðvikudagur, 05 ágúst 2009

Það er einn rakki eftir ólofaður úr gotinu hjá Ægishjálmsræktun.  Allar upplýsingar í síma 892 3409 eða á tölvupóstfanginu Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

Hér kemur smá kynning á stoltum foreldrum:


   

Arkan di Altobello

    Fanta di Altobello
ScgCh, BihCh, MacCh, IsCh, IntCh
    BihCh, IsCh, IntCh

BH, IPO I, HD B, Eyes clear,

vWd clear

   

MH, IPO I, HD A, Eyes clear,

vWd clear Thyroid normal

 
Úrtökumótið á morgun laugardag
föstudagur, 24 júlí 2009

 2. Úrtökumót til Íslandsmeistara verður á morgun laugardag kl. 13:00.  Það er fín þáttaka í prófinu og stefnir allt í frábæran dag.  Keppt verður á Ullanesvelli í Mosfelsbæ og dómari verður Monika Karlsdóttir og keppt verður í krakkabronsi, hlýðni brons og hlýðni 1.

 

Gild einkunn í öllum æfingum veitir þátttökurétt á Íslanandsmeistaramótinu í september sem og að stigin geta gilt til stigahæsta hund ársins.  Veitt verða verðlaun fyrir 1. - 3. sæti í öllum greinum og er mótaröðin styrkt af Pak ehf. umboðsaðila Propac á Íslandi og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

 

Til að komast að Ullanesvelli er keyrt eins og leið liggur í gegnum Mosfellsbæ og þegar komið er  að hringtorginu sem liggur við Álafosskvosafleggjarann er keyrt út frá því á Vesturlandsveg og þegar komið er við móts við afleggjarann upp í ásahverfið á hægri hönd er beygt yfir Vesturlandsveg niður til vinstri og er völlurinn þar í kvosinni.  Við hvetjum bæði þátttakendur og áhorfendur til þess að taka með sér tjaldstóla eða eitthvað þægilegt til að sitja á og jafnvel teppi þannig að það megi fara sem best um fólk á meðan á prófi stendur. 

 

Eftir að prófi lýkur er ætlunin að setjast niður saman og borða eldbakaðar pizur gegn vægu gjaldi í Mosfellsbænum.  Reglurnar fyrir bæði hlýðni brons og hlýðni 1 er svo hægt að nálgast hér og er góð hugmynd að lesa þær yfir fyrir prófið.

 

Vonumst til að sjá sem flesta á morgun hvetja fólk áfram.

 

Með kveðju

Vefstjóri

 

 

 

 

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 37 - 45 af 209