Forsíða
Umhverfisþjálfun á sunnudag
laugardagur, 31 október 2009

 Á morgun sunnudaginn 1. nóvember kl. 11:00 ætlum við að hittast í Nauthólsvíkinni og taka saman smá umhverfisþjálfun.

 

Við ætlum að hittast alltaf annan hvern sunnudag og æfa saman undir misjöfnu áreiti okkur og ferfætlingunum okkar til góðs.

 

Við minnum á taum, dót, nammi, kúkapoka og að sjálfsögðu góða skapið.  Við hittumst fyrir tveim vikum síðast og stóðu allir sig frábærlega þá og vonandi sjáum við sem flesta á morgun og höfum gaman af.

 

Kveðja

Vefstjóri

 
Æfing og BH kynning
fimmtudagur, 29 október 2009

 Við minnum á æfinguna kl 19:00 á morgun í reiðhöll Gusts í Kópavogi.  Sem fyrr eru allir velkomnir en það kostar kr. 500- að vera með.  Munið eftir taum, dóti, nammi, kúkapoka og að sjálfsögðu góða skapinu.  Leiðsögn verður í boði fyrir þá sem hennar óska.

 

Eftir æfinguna ætlum við svo að halda kynningu á BH prógramminu .  BH er próf sem reynir á samband stjórnanda og hunds í hlýðni ásamt því að hundurinn er prófaður við ýmiskonar áreiti til að kanna stöðugleika skapgerðar hans.  Dobermann Ísland mun halda BH próf vorið 2010 og því ekki úr vegi fyrir áhugasama að mæta og kynna sér þetta nánar. 

 

Kynningin verður haldin í Helgukoti sem er kaffistofan í reiðhöll Gusts.  Heitt verður á könnunni og kostar ekkert inn.  Við vonumst til að sjá sem flesta á morgun að kynna sér þetta mjög svo áhugaverða próf sem er þreytt út um allan heim.

 

Kveðja 

Vefstjóri

 

 
BH reglur
miðvikudagur, 28 október 2009
Reglurnar fyrir BH eru komnar inn á síðuna og hvetjum við ykkur til að kíkja aðeins yfir þær. 
 
Mynd dagsins
mánudagur, 26 október 2009
 
Mjaðmamyndaniðurstöður
fimmtudagur, 08 október 2009

Það hafa borist nýjar niðurstöður úr mjaðmamyndum og er gaman að sjá hvað þeir hundar sem hafa verið myndaðir upp á síðkastið eru að koma vel út.  Niðurstöðurnar er hægt að skoða hér .

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 28 - 36 af 209