Forsíða
Aðalfundur og föstudagsæfingar
sunnudagur, 25 nóvember 2007

Aðalfundur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Aðalfundur Dobermann Ísland var vel sóttur og var farið yfir það sem er á döfinni

hjá klúbbnum og því sem hefur verið áorkað frá stofnun hans. Kosið var um 3 sæti

í stjórn og bjóðum við nýja stjórnarmeðlimi þær Gróu Sturludóttur varaformann,

Drífu Gestsdóttur meðstjórnanda og Margréti Rúnarsdóttur gjaldkera velkomnar

til starfa og gaman að fá svona kraftmikið fólk með okkur. Fundargerð fundarins

mun verða sett á vefinn á næstu dögum og hvetjum við fólk til að kynna sér hana.

Það er mikill hugur í félagsmönnum Dobermann Ísland og lítur komandi starfsár

vel út og margt spennandi á döfinni. Merki klúbbsins var valið úr innsendum

hugmyndum og var stjórn falið það verkefni með aðstoð hönnuðar að koma því í

endanlega mynd og mun það verða birt hér á vefsíðunni um leið og sú vinna hefur

verið kláruð.

Föstudagsæfingin var að venju vel sótt en því miður var skemman ansi blaut og

því voru hundar og eigendur moldugir upp fyrir haus í lok æfingar. Ákveðið hefur

verið að færa æfingarnar í húsnæði Gusts, Álalind Kópavogi sem er stærra húsnæði

og verður ekki eins blautt í votum veðrum, vonumst við til að sú breyting komi til

með að mælast vel fyrir. Æfingarnar verða á sama tíma og áður eða kl. 19:00 á

föstudagskvöldum.   Það eru komnar myndir í myndagalleryið frá aðalfundi og síðustu

æfingu og er meðfylgjandi mynd frá aðalfundi.

Annars viljum við þakka félagsmönnum fyrir hversu vel hefur tekist til að koma starfi

klúbbsins af stað og eru mánuðurnir framundan afar spennandi.

Kveðja
Vefstjóri

 
Aðalfundur Dobermann Ísland
miðvikudagur, 21 nóvember 2007

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Aðalfundur Dobermann Ísland verður haldin laugardaginn 24. nóvember í húsnæði

Actavis Dalshrauni 4 Hafnarfirði. Gengið er inn á milli húsa nr. 4 og 6 og meðfylgjandi

er afstöðumynd til frekari leiðbeiningar.

Fundurinn hefst kl. 14:00 og vonumst við til að sjá sem flesta.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:


Kosning fundarstjóra

 

Skýrsla stjórnar

 

Kosning í stjórn:


Lagabreytingar:


IDC aðild

 

Samstarf við erl. dobermann klúbba varðandi ræktunarmarkmið tegundarinnar.

 

Staða Dobermann Ísland gagnvart HRFÍ

 

Æfingasvæði

 

Vefsíða

 

Önnur mál

 

Einnig viljum við minna á æfinguna kl.19:00 á föstudagskvöldið í reiðskemmu Sigurbjarnar

Bárðarsonar Í Víðidal. Allir velkomnir og sem fyrr kostar 500 kr.

Með dofrakveðju og von um að sjá sem flesta á föstudag og laugardag.
Vefstjóri



 
Meira...
<< Byrja < Fyrri 21 22 23 24 Næsta > Endir >>

Úrslit 208 - 209 af 209