Forsíða
Æfing í kvöld
föstudagur, 15 janúar 2010

 Við minnum á æfinguna kl. 19:00 í kvöld í reiðhöll Gusts í Kópavogi.

Allir velkomnir sem fyrr og kostar kr. 500- fyrir félagsmenn en kr. 700- fyrir aðra.

 

Munið eftir taum, dóti, nammi, kúkapoka og góða skapinu.  Við ætlum að æfa saman létta hlýðni og taka hópæfingar í restina.  Þeir sem vilja geta æft fyrir sýninguna sem er núna á næsta leiti.

 

Vonumst til að sjá sem flesta

 

Með kveðju

Vefstjóri

 
Umhverfisþjálfun
laugardagur, 12 desember 2009

Við minnum á umhverfisþjálunina á morgun kl. 11:00.  Við ætlum að hittast við Hallgrimskirkju og ganga um miðbæinn.  

 

Munið eftir taum, nammi, kúkapoka og góða skapinu.  Það eru allir velkomnir og vonandi sjáumst við sem flest á morgun og tökum smá umhverfisþjálfun í jólaösinni.

 

Kv.

Vefstjóri 

 

 
Paradise di Altobello í hlýðni
miðvikudagur, 09 desember 2009
 
Stigahæðstu sýningarhundar ársins og aðventuganga PMF deildarinnar
föstudagur, 04 desember 2009

Árið 2009 var mjög gott fyrir Dobermann tegundina í sýningarhringnum hjá HRFÍ.  Tveir Dobermann hundar komust á lista yfir stigahæðstu hunda ársins hjá HRFÍ.

 

Dobermann hundurinn Arkan di Altobello í eigu Björgvins og Hildu gerði sér lítið fyrir og varð 7. stigahæðsti hundur ársins.    Arkan varð einnig stigahæðsti hundurinn af öllum hundum í tegundarhóp 2 og þar með stigahæðsti hundur PMF deildarinnar þetta árið.  

 

Hinn Dobermann hundurinn sem komst á lista þetta árið var hundurinn Ægishjálms Galdurs Þrymur "Púki" í eigu Ottós Þrastarsonar.  Púki varð 15. stigahæðsti hundur ársins og er það glæsilegur árangur hjá þessum unga og efnilega hundi. 

 

Síðast en ekki síst ber að nefna ungan og efnilegan hvolp sem steig sín fyrstu skref í sýningarhringnum þetta árið.  Ægishjálms Galdurs Váli "Flex" í eigu Huldu Teitsdóttur og Elís Hólm var einn af stigahæðstu hvolpum PMF deildarinnar þetta árið.  Flex stóð sig afar vel á haustsýningunni og verður mjög gaman að fylgjast með honum í framtíðinnni.

 

Á sunnudaginn næstkomandi kl.  15:00  í Sólheimakoti ætlar PMF deildin að heiðra 3. stigahæðstu hunda og 2 stigahæðstu hvolpa deildarinnar.  Byrjað verður á göngutúr í fallegu umhverfi og eftir gönguna verða hundarnir svo heiðraðir.  

 

Við viljum hvetja sem flest ykkar til að mæta og taka þátt í þessu og fagna þessum glæsilegu fulltrúum Dobermann tegundarinnar.

 

Með kveðju

Vefstjóri 

 

 

 
Umhverfisþjálfun
laugardagur, 28 nóvember 2009

Við minnum á umhverfisþjálfunina á morgun kl. 11:00.  Við ætlum að hittast við Hljómskálann í Hljómskálagarðinum og taka smá rölt í gegnum miðbæinn með ferfætlingana okkar.  Munið eftir nammi, kúkapoka og að sjálfsögðu góða skapinu og sem fyrr eru allir velkomnir.

 

Með kv.

Vefstjóri 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 19 - 27 af 209