| Kynning og fræðsla á sænska hundafóðrinu frá Halla Foder |
|
Sara Halldórsdóttir starfar sem fóðurráðgjafi hjá Halla Foder í Svíþjóð og er í miklum samskiptum við ýmsa ræktendur og hundeigendur. Hún sér um neytenda og kynningarmál á fóðrinu erlendis og er mjög vel að sér. Hún er með áralanga persónulega reynslu sem ræktandi ásamt því að hafa sótt mörg námskeið og fyrirlestra um næringu, fórun og fleiru sem tengist heilbrigði hunda.
6. apríl nk. frá kl. 18:00 - 20:00 Fræðsla:
Farið verður yfir hvað á að hafa í huga þegar valið er fóður, hvað þarftu að vita til að fóðra hundinn þinn á réttann hátt og hvað gera mismunandi samsetningar fóðurs fyrir hundinn þinn. Til dæmis þarf að þyngja eða létta hundinn, laga feld eða bæta meltingu, er hundurinn í mikilli líkamlegri áreynslu o.fl. í þeim dúr ásamt fóðrun hvolpa og hvolpafullra tíka. Erindið verður haldið í verslun Bendis, allir velkomnir og kaffi á könnunni.
Þann 7. apríl nk. frá kl. 14:00 - 18:00 verður svo hægt að fá einkaráðgjöf í verlslun Bendis og fá upplýsingar og svör við spurningum um hvernig þú gætir í gegnum fóðrun hunsins þíns bætt heilsu hans og líðan.
Með kveðju Sara Halldórsdóttir og Sigríður Oddný Hrólfsdóttir Bendir Hlíðarsmára 13, 201 Kópavogi S: 511 4444 www.bendir.is |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|

