Sýningarþjálfun og aðalfundur

Við minnum á sýningarþjálfunina í kvöld í reiðhöll Gusts í Kópavogi kl. 20:00.  Ekki seinna vænna að bursta aðeins rykið af sýningartöktunum enda styttist óðum í sýningu.  Það kostar kr. 500- að vera með og eru allir velkomnir, við minnum ykkur á að taka með sýningartaum, nammi, dót, kúkapoka og að sjálfsögðu góða skapið.

 

Við viljum einnig minna á að aðalfundur Dobermann Ísland verður miðvikudagskvöldið 24. febrúar næstkomandi og hvetjum við því alla félagsmenn til þess að greiða árgjaldið sitt fyrir aðalfundinn til að öðlast kjörgegni.  En fundurinn verður með hefðbundnu sniði og verður farið yfir dagskrá ársins en þar er af mörgu áhugaverðu og skemmtilegu að taka.  En félagsgjaldið sem er kr. 2.500,-  á ári en 3.500,- kr. fyrir hjón greiðist á bankareikning félagsins 526-26-2910, kennitala.690405-0910.  Félagsgjaldið er liður í að halda úti starfsemi klúbbsins og getur stjórn lofað því að árið 2010 sem er 5 ára afmælisár DÍ mun verða mjög viðburðarríkt og skemmtilegt því vonumst við til að sjá sem flest ykkar með okkur í starfinu.

 

Með kveðju

Vefstjóri 

 
< Fyrri   Næsti >