Sýningarþjálfun í kvöld, fyrirlestur og Esjuganga á sunnudag

Í kvöld kl. 20:00 verður sýningarþjálfun í reiðhöll Gusts í Kópavogi.  Allir velkomnir sem fyrr og kostar kr. 500- að vera með.

Við minnum á sýningartaum, nammi, dót, kúkapoka og að sjálfsögðu góða skapið.  Við hvetjum alla sýnendur til að mæta enda ekki seinna vænna að fara að æfa fyrir komandi sýningu.

 

En við viljum einnig benda á að núna á laugardaginn býður hundaræktarfélag Íslands upp á fyrirlestur um atferli hunda með áherslu á hegðunargalla og viljum við hvetja alla áhugasama til að nýta sér tækifærið og hlýða á fyrirlesturinn.  En nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu HRFÍ, www.hrfi.is

 

Á sunnudag ætlum við svo að halda áfram viðteknum hætti og ganga Esjuna í góðum félagsskap manna og ferfætlinga.  Við ætlum að hittast við Esjurætur kl. 11:30 og taka góða göngu.  Við minnum aftur á að hægt er að nálgast úrvalsgöngu og dráttarbeisli hjá Voffaborg í Víðidalnum.

 

Með kveðju og von um að sjá sem flesta um helgina.

Vefstjóri 

 

 
< Fyrri   Næsti >