Esjuganga

 Á morgun sunnudag ætlum við að ganga aftur Esjuna.  Við hittumst við bílastæðið við Esjurætur kl. 11:30 og svo ganga allir á sínum hraða eins langt upp og þeir treysta sér til.

 

Við mælum með að fólk sé í góðum skóm og fatnaði við hæfi.  Og einnig er gott að vera með göngustafi ef fólk lumar á þeim ásamt því að vera með léttan bakpoka með vatnsbrúsa í og jafnvel smá súkkulaði eða epli.

 

Hundarnir ættu helst að vera í beisli og hafa göngu og dráttarbeislin frá Björkis reynst mjög vel.  Fyrir áhugasama er hægt að nálgast þau hjá hundaleikskólanum  Voffaborg á góðu verði.

 

 
< Fyrri   Næsti >