Forsíða
Aðalfundur Dobermann Ísland
þriðjudagur, 23 febrúar 2010

 Aðalfundur Dobermann Ísland verður haldin á miðvikudagskvöldið 24. febrúar kl. 21:00 á veitingahúsinu Orange Hafnarstræti 20 4. hæð

 

Vonumst við til að  sjá sem flesta koma og kynna sér það sem er framundan á 5 ára afmælisári klúbbsins.

 

 

 

Dagskrá fundarin er eftirfarandi:

 

Kosning fundarstjóra

 

Skýrsla stjórnar

 

Lagabreytingar

 

Kosning stjórnar

 

AFmælisdagskrá ársins kynnt

 

Skipun nefnda

 

Önnur mál

 

Sjáumst hress á fundinum

Með dofrakveðju

Vefstjóri

 
Sýningarþjálfun og aðalfundur
föstudagur, 19 febrúar 2010

Við minnum á sýningarþjálfunina í kvöld í reiðhöll Gusts í Kópavogi kl. 20:00.  Ekki seinna vænna að bursta aðeins rykið af sýningartöktunum enda styttist óðum í sýningu.  Það kostar kr. 500- að vera með og eru allir velkomnir, við minnum ykkur á að taka með sýningartaum, nammi, dót, kúkapoka og að sjálfsögðu góða skapið.

 

Við viljum einnig minna á að aðalfundur Dobermann Ísland verður miðvikudagskvöldið 24. febrúar næstkomandi og hvetjum við því alla félagsmenn til þess að greiða árgjaldið sitt fyrir aðalfundinn til að öðlast kjörgegni.  En fundurinn verður með hefðbundnu sniði og verður farið yfir dagskrá ársins en þar er af mörgu áhugaverðu og skemmtilegu að taka.  En félagsgjaldið sem er kr. 2.500,-  á ári en 3.500,- kr. fyrir hjón greiðist á bankareikning félagsins 526-26-2910, kennitala.690405-0910.  Félagsgjaldið er liður í að halda úti starfsemi klúbbsins og getur stjórn lofað því að árið 2010 sem er 5 ára afmælisár DÍ mun verða mjög viðburðarríkt og skemmtilegt því vonumst við til að sjá sem flest ykkar með okkur í starfinu.

 

Með kveðju

Vefstjóri 

 
Sýningarþjálfun í kvöld, fyrirlestur og Esjuganga á sunnudag
föstudagur, 05 febrúar 2010

Í kvöld kl. 20:00 verður sýningarþjálfun í reiðhöll Gusts í Kópavogi.  Allir velkomnir sem fyrr og kostar kr. 500- að vera með.

Við minnum á sýningartaum, nammi, dót, kúkapoka og að sjálfsögðu góða skapið.  Við hvetjum alla sýnendur til að mæta enda ekki seinna vænna að fara að æfa fyrir komandi sýningu.

 

En við viljum einnig benda á að núna á laugardaginn býður hundaræktarfélag Íslands upp á fyrirlestur um atferli hunda með áherslu á hegðunargalla og viljum við hvetja alla áhugasama til að nýta sér tækifærið og hlýða á fyrirlesturinn.  En nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu HRFÍ, www.hrfi.is

 

Á sunnudag ætlum við svo að halda áfram viðteknum hætti og ganga Esjuna í góðum félagsskap manna og ferfætlinga.  Við ætlum að hittast við Esjurætur kl. 11:30 og taka góða göngu.  Við minnum aftur á að hægt er að nálgast úrvalsgöngu og dráttarbeisli hjá Voffaborg í Víðidalnum.

 

Með kveðju og von um að sjá sem flesta um helgina.

Vefstjóri 

 

 
Síðasti skráningardagur á vorsýningu og sýningarþjálfun kl. 20:00
föstudagur, 29 janúar 2010

Við minnum á að síðasti skráningardagur á vorsýningu HRFÍ er í dag.  Hægt er að skrá sig á heimasíðu HRFÍ í gegnum öruggan vefþjón eða á skrifstofu félagsins.  Við viljum hvetja alla Dobermann eigendur til þess að skrá hundana sína og hafa gaman af.  Dobermann tegundin átti góðu gengi að fagna sýningarárið 2009 og verður gaman að fylgjast með gang mála árið 2010.

 

Í kvöld kl. 20:00 verður einnig sýningarþjálfun í reiðhöll Gusts og eru allir velkomnir sem fyrr.  Við minnum á sýningartaum, dót, nammi, kúkapoka og góða skapið. 

 

Vonumst til að sjá sem flesta

 

Með kveðju

Vefstjóri

 

 
Mynd dagsins
miðvikudagur, 27 janúar 2010
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 9 af 203